Þjónustuskilmálar

Fyrirtækjaupplýsingar:

Fortitude ehf / Golf 24
kt. 650624-3350
Borgartún 24
105 Reykjavík
golf24@golf24.is

Staðfesting

Þegar þú hefur lokið við að bóka í bókunarkerfinu færðu tölvupóst með bókunarnúmeri og kvittun fyrir þjónustukaupunum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar.

Kaupandi samþykkir að tímamörk tengd bókuðum tímum verði virt. Ekki er heimilt að breyta eða færa til þessa tíma nema með fyrirfram samþykki rekstaraðila, og greiða þarf sérstakan kostnað fyrir slíka breytingu. Óbókaðir tímar teljast eign rekstaraðila.

Greiðsla

Kaupandi getur greitt með bankamillifærslu eða greiðslukorti. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslugátt SaltPay. Ef greitt er með bankamillifærslu er bókun gerð af starfsmanni þegar millifærsla hefur verið staðfest.

Gjafakort

Kaupandi getur einnig greitt með gjafakorti. Við notkun gjafakorts í greiðsluferli bókanna skal nota kóðann sem tilheyrir gjafakortinu í viðeigandi reit í innkaupakörfunni og virkjaður þar.

Þegar þú hefur lokið við kaup á gjafakorti á síðunni færðu tölvupóst með gjafakorti og kvittun fyrir kaupunum. 

Verð 

Uppgefið verð í bókunar- og gjafakortakerfi okkar er í íslenskum krónum. Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatt. Vinsamlegast athugaðu að verðið i bókunar- og gjafakortakerfinu getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur. 

Afbókanir og mætingarregla

Afbóka þarf bókaðan tíma með minnst 12 klst. fyrirvara. Sé tími afbókaður með skemmri fyrirvara eða ef viðskiptavinur mætir ekki í bókaðan tíma, áskilur Golf 24 sér rétt til að innheimta fullt gjald fyrir tímann.

Fastir tímar fylgja sömu reglum nema annað sé tekið fram

Fastir tímar

Fastir tímar fela ekki í sér samning um fast verð.
Viðskiptavinur fær hlutfallslegan afslátt af gildandi verðskrá hverju sinni, nema annað sé tekið fram í skriflegum samningi.

Golf 24 áskilur sér rétt til að breyta verðskrá án fyrirvara.

Viðskiptavinur getur sagt upp sínum föstu tímum fyrir 15. dag hvers mánaðar, og tekur uppsögn gildi frá og með næsta mánuði.

Aðgangur að rýminu og notkun búnaðar

Viðskiptavinur ber ábyrgð á réttri notkun TrackMan-herma, búnaðar og rýmis á bókuðum tíma.

  • Skemmdir af völdum rangrar notkunar, gáleysis eða brota á reglum geta verið innheimtar af viðskiptavini.
  • Aðganskóða má ekki framsenda til þriðja aðila.
  • Viðskiptavinur ber ábyrgð á öllum notendum sem hann hleypir inn í rýmið.

Endurgreiðslur

Greitt gjald fyrir bókaða tíma er ekki endurgreitt nema þjónusta fari ekki fram vegna aðstæðna sem rekja má til rekstraraðila.

Gjafakort og áskriftargjöld eru óendurgreiðanleg nema lög kveði á um annað.

Persónuvernd

Farið er með allar persónuupplýsingar sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára þjónustukaup. Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.
Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.

Áskriftir og verðbreytingar

Golf 24 áskilur sér rétt til verðbreytinga.

Gjald getur hækkað einu sinni á ári í samræmi við hækkun á vísitölu neysluverðs.

Ef gjald hækkar umfram vísitölu neysluverðs hefur áskrifandi rétt á að segja upp áskriftinni án fyrirvara.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.